Mitt Daglega Líf

16.06.2007 00:44:38 / amyosk

YES YES !!!!!

Jæja þá er litli prinsinn á heimilinu kominn með tönn... í neðri góminn vinstri meginn held ég !!!!! og það eru 9 dagar þangað til hann verður 6 mánaða, ég er svo stolt.!

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 17:53:48 / amyosk

Gellan að fara að vinna

Jæja það er komið svoldið síðan maður skrifaði síðast...... samt þegar maður hugsar svona aftur á bak í tíman þá er ekki mikið búið að ske hjá manni sem maður getur sagt frá, Við Benni skruppum örstutt á akureyri á þriðjudaginn að skutla ömmu , hún var að fara til læknis, og gisti hjá Díu frænku, svo fórum við bara aftur heim, ekkert annað hjá manni sem maður finnst merkilegt að segja frá. Gullið okkar er orðinn 4. mánaða, svo stór!!!! en annars... verð að fara að taka mig til, er að fara að vinna í Kántrýbæ í smá tíma í kvöld, það er ágætt að breyta smá um umhverfi og gera eitthvað annað en að þvo þvott og hanga í tölvunni.

 

Yes Yes !!!!!!!!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 23:41:50 / amyosk

Gleðilegt Sumar !!!

Jæja þá er komið sumar loksins, vonandi verður veðrið eftir því ha. Annars er lítið að frétta ég er búin að vera geðveikt löt nenni EKKI NEINU! Það koma svona dagar hjá manni, en Mikael dafnar mjög vel og er alveg að verða 4ra mánaða litla gullið, hann prufaði að fara í göngugrindinaí gær í fyrsta skipti í nokkrar minutur, það var rosalega spennó, allavegana að naga dótið framaná borðinu... þó svo að mamma sé alltaf að reyna að banna honum það því það getur ekki verið gott fyrir hann!

 

En annars er Benni heima núna  þessa dagana, báturinn bilaði og þá er bara hangið heima á meðan það er verið að laga.

 En núna nenni ég ekki að skrifa meira í bili

bleble


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 14:32:12 / amyosk

Leiðinlegt veður

Það er rigning!!! og mér finst hún ekkert skemmtileg. Langar mest til þess að leggjast uppí rúm og liggja undir sæng í allann dag.:frown:


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 15:30:05 / amyosk

Má ekki gleyma blogginu!!!

Góðann Daginn, jæja þá eru komnir nokkrir dagar síðan ég skrifaði síðustu færslu, og hvað hefur skeð hjá mér síðann? Jú ég fór til Reykjavíkur og "náði" í Benna og svo var farið að versla smávegis, í matinn og svona fyrir páskana. svo komum við heim til okkar og það var svo kósi( fyrir þau sem ekki vita þá er ég búin að flytja heim til mömmu tímabundið á meðan benni er úti á sjó :D, nenni ekki að hanga ein með engann bíl!)

Já og svo vorum við bara heima og buðum Katrin Ingu og Arnari Hauk og
Perlu í mat á föstudainn langa, við vorum samt bara með Fisk, ekkert fínt. Svo Kom Jenny í heimsókn til mín í fyrsta skipti í nýju íbúðina með lítinn sætann hund, man nú reyndar ekki hvað hann heitir, já og svo og svo og svo gerðum við ekki mikið meira. Nema nátturulega þetta sama drasl sem maður gerir á hverjum degi og hver vill hlusta á það.

 

Oddur bróðir hans pabba kom og var hjá mömmu yfir Páskana með Hlöðver og Didda, þar sem Helena kærastan hans var hjá Dagbjörtu systir sinni og svo voru Heiðar og Badda Líka hérna um Páskana. En
Pabbi greyið hitti þau ekkert því hann var útá sjó :( og kom heim í gær og fór aftur í morgun Gaman Gaman!!!

 En Já Benni kemur heim í dag, bátshræið bilaði þegar þeir voru að fara útá sjó í gær og það þarf að panta eitthvað drasl sem tekur nokkra daga að koma þannig að ég fæ hann heim á meðann (þá getur maður fylgst með honum betur:lol:

en ég er að spá í að skella mér í ljós svo maður verði nú einhverntíman brúnn og sætari og  gangi ekki um eins og lík hérna

 

                                      Þokkalega!!!!!!!!!!!!!!!

 

Það er bara nokkuð nett færsla núna, loksins!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 21:02:13 / amyosk

yesyes

búin að ákveða..... ég fer í reykjavík....... heyrumst þegar ég kem aftur!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 17:00:00 / amyosk

Fara suður eða ekki?????????????

Góðann daginn, það er mánudagur 2. Apríl í dag, og ég er í smávegis vandræðum.... ætti ég að fara suður á morgun eða ekki, Benni er að koma í land annað kvöld eða á miðvikudags morgun og það er pæling hvort maður ætti að skella sér bara og taka á móti honum og fara með bílinn hans pabba suður í leiðini svo hann komist nú heim þegar hann kemur í land svo myndum við benni bara koma á okkar bíl til baka á miðvikudaginn hhhmmm hhhmmmm hhhmmm:!: Æi ég veit það ekki, þetta væri ekki spurning ef það væri ekki fyrir hann Mikael, það er bara svo leiðinlegt fyrir hann að hanga svona í bíl held ég, og mamma er að fara að vinna á miðvikudaginn uppá elliheimili þannig að hún getur ekki passað Gullið, en maður verður að pæla aðeins betur í þessu ég hef enn nokkra klukkutíma til að ákveða mig:S

 

Mig langar samt smá að fara!!!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 12:48:30 / amyosk

Númer "tvö"

jæja, þá er komið að færslu númer "tvö", ég ætlaði að skrifa hana í gær en tölvan mín náði ekki netinu hérna heima hjá mömmu... eitthvað bilað eða lélegt samband þar. ég veit svosem ekki hvað ég ætti að skrifa um það skeður afskaplega lítið hérna á skagaströnd hjá okkur, það er kanski of mikið að skrifa á hverjum degi eða svo til, ef maður myndi bara skrifa á svona tveggja til þriggja vikna fresti þá myndi maður kanski ná að skrifa allstóra færslu. Jájá, ég segji ekki meira að sinni.

 

            Later!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 20:47:44 / amyosk

ég aftur

jæja ég er bara búin að skrifa 2svar sinnum í dag.... ég er búin að setja nokkrar myndir á síðuna, en myndaalbúmið var í eihverju fokki þannig að þær koma bara sem einhverjir "tenglar" skiljú!!!!!!!!!!!!!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 19:44:34 / amyosk

Hæhæ í fyrsta skiptið

 

 

Jæja þá er ég komin með smá blogg,, loksins, er að prófa í fyrsta skiptið, og við sjáum bara hvernig gengur, hvort ég eigi eftir að nenna þessu einhvað, allavegana ekkert merkilegur dagur, bara hanga og aftur hanga, nema ég skutlaði arnari og perlu á blönduós, hún er eithvað veik í eyrunum smávegis. Svo er litli gull molinn minn bara sofandi og ég ákvað að fara að blogga. Allavegana bæbæ að sinni


» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
9. febrúar 2012
Uppáhald Leikirnir mínir á Netinu